Linda Björk

//L I N D A B J Ö R K//

02.01.2009 17:33:28 / lindab

Nýtt ár

Jæja það er komið nýtt ár, alveg næstum án þess að ég tæki eftir því. Fyrri önnin í skólanum búin, og gekk alveg glimrandi, þó ég segi sjálf frá :) Jólin komin og næstum farin og fríið búið að vera gott. Skólinn byrjar ekki aftur fyrr en 13.Janúar og þá verð ég búin að vera í rúmlega mánaðar fríi. Búin að fara til Húsavíkur í fríinu og vera í gipsi mest allann tímann. Lítið að frétta annað, bara fátækt og eitthvað. Ætla að vera ennþá duglegri í námi núna eftir áramótin og reyna að taka ógeðslega mikið með :) Þannig að ég nái að klára í sumar :)

Segi ekki meira í bili.

LBM

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 18:54:36 / lindab

Er ekki spurning um að halda lífi í þessu??

Það er víst enginn lygi að það er svolítið langt síðan ég hef bloggað!! En það var í ágúst þegar ég var víst enn að vinna og bjó í Kópavoginum. Nú er ég komin í skóla og bý ekki lengur í Kópavoginum heldur í Keflavík, þar sem ég er komin í stúdentaíbúð á Vallarheiði. Flutti í byrjun sept og þá byrjaði skólinn líka, hef einhvernvegin ekki haft tíma til að blogga því mér finnst ég alltaf vera að gera eitthvað.

Ég er búin að vera að kenna fyrstu hjálp síðustu 2 helgar, og er að fara að kenna aftur núna um helgina, í þetta skiptið er það þó fyrir HSSK og verður á Úlfljótsvatni. Allir að kíkja þangað!! 

Annars veit ég ekkert hvað ég á að segja ykkur hérna...þ.e.a.s ef einhver les þetta ennþá. Allavega gengur skólinn hérna í Keflavík bara ágætlega ,en svo er ég auðvitað líka í fjarnámi og kvöldskóla svo það er nóg að gera....veit ekki hvað ég á að segja um fjarnámið, en kvöldskólinn gengur vel. Nú þarf maður bara að fá smá spark í rassinn og halda þessu áfram. 

Annars vil ég bara benda þeim á sem ekki hafa kíkt í heimsókn, að það er auðvitað vel séð að gera svoleiðis, og gæti jafnvel verið að maður gæfi upp heimilisfang svona til útvaldra ;)

Ætla ekki að hafa þetta meira í bili, enda er þá líklegt að maður myndi gefast upp ef maður myndi byrja of stórt.

Kveð þessvegna í bili.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 00:55:04 / lindab

7. Næturvaktin

Hæhæ....ég er á næturvakt nr 7 í röðinni, og þetta er alveg komið gott, er búin að sofa allt of lítið, sökum handbolta og stress og fleira. Laggði mig frá kl 13 í dag til 15, og sjitt.
Búin að vera að pakka aðeins fyrir flutninga, og svo líka fyrir útlönd. Ég var að pæla í að fara til USA á miðvikudaginn, en í morgun á næturvaktinni hringdi ég og breytti því þannig að ég fari í fyrramálið 25.ágúst BEINT eftir vinnu, flugið mitt fer kl 10:30 og ég á að vera búin kl 8!!

Verð að ferðast allann daginn á morgun þannig að ég verð sennilega orðin eins og ég veit ekki hvað!! Byrja á því að fljúga til boston, þaðan fer ég svo til charlotte sem er í north caroline, og þaðan fer ég svo til tampa sem er á florida. Held að klukkan verði orðin nótt aftur á íslandi þegar ég kem á áfangastað ( núna meigið þið vorkenna mér )  hehhehe

En allavega svo eru allir boðnir velkomnir í flutninga í byrjun mánaðarinns, og svo er aldrei að vita nema það verði boðið upp á party eða eitthvað í staðinn þegar allt verður eins og það á að vera :)

Hef þetta ekki lengra í bili og bið að heilsa,

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 00:50:51 / lindab

Time flies!!

Kvöldið!!

Það er nú við hæfi að henda inn nokkrum línum hérna þar sem að skemmtilegasti tími ársins er búinn og við tekur ekkert nema alvara lífsins. Þegar ég tala um skemmtilegasta tíma ársins þá er ég auðvitað að tala um þjóðhátíð sem toppaði sig eins og alltaf :) Vaáá hvað Páll Óskar var GEÐVEIKUR á sviðinu....eigum við að ræða það eitthvað eða?? Maðurinn er náttúrulega bara æði og dressið sem hann mætti í...svona menn eiga bara að fá medalíu :D - Komst því miður ekki á Gay pride frekar en venjulega ( hef aldrei komist ) en það stendur allt til bóta, vaar bara á næturvaktatörn og var hálf veik.

Núna er ég líka á næturvakt, en það er bara nr 2 í röðinni, en í næstu viku verður allt toppað og tek ég þá 7 næturvaktir í röð, það verður skemmtilegt og sem betur fer held ég að allir sem ég þekki verði flúnir til útlanda, sem er eiginlega eins gott fyrir þá ( ætli maður verði ekki orðin svoldið erfiður þarna í lokin ) þarf samt að mæta á skólasetningu eftir 6 næturvaktir, sem að verður virkilega fróðlegt og skemmtilegt.

"Komin" með íbúð, en samt ekki komin með lyklana af henni, búin að skrifa undir samning og hún er bara af flottari gerðinni ef svo má segja ;) tæplega 100 fm svalir og allur pakkinn :) Er búin að vera svoldið dugleg að versla mér allskonar fínerí, og er komin með borðstofuborð og stofuborð...ég sem átti sennilega 3 tegundir af stofuborðum út um ALLT land :) En þetta verður ábyggilega voða flott og þá verður ykkur auðvitað öllum boðið í heimsókn :)

Er búin með prófin í þetta skipti og held ég að allt hafi gengið vel, á eftir að fá út úr einu , en hitt prófið sem gekk vægast sagt illa kom bara voðalega vel út...var ekki einu sinni að skríða ;) En ég bíð þó eftir að kennarinn láti mig vita að hann hafi gefið mér einkunn frá einhverri annarri Lindu ( vona samt ekki ) En þetta er bara heppnis gisk held ég.

Vona að allir séu hressir, og vil svo fara að óska eftir að vinir / vinkonur fari að hittast eitthvað, þetta er ekki hægt...allir að flytja langt langt í burtu og það bara gerist án þess að maður fatti það það er svo mikið að gera.

Vil fá komment frá ykkur svona svo maður fái smá staðfestingu á að liðið sé á lífi :)

Love and peace

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2008 13:40:05 / lindab

BIG NEWS!!

Sælar!!

Eins og sést á færslunni hér á undan þá var hún skrifuð 27. Maí sem þýðir auðvitað bara eitt að það hefur MARGT gerst síðan þá, og margt breyst. Síðan þá hef ég veið svoldið mikið að gera, og afsakast bloggleysi mitt því hér með vegna skóla og vinnu og já...

Ég fór semsagt í sumarskóla, og tók þar þýsku stærðfræði og sálfræði, nema ég náði ekki stærðfræðinni ( bjóst reyndar ekkert við því ) En er svo ennþá í ensku og sögu í fjarnámi í Fá svo ég vona að það gangi bara vel.

Var að vinna í sjálfboðavinnu fyrir kópavogsbæ, með siglingarnámskeið fyrir krakka og þegar ég komst að því að ég væri liggur við að borga með mér þarna hætti ég, fékk nýja vinnu med det samme, og er búin að vera í henni núna í smá stund. Það er semsagt vinna sem stuðningsfulltrúi með 2 fötluðum konum úti á Seltjarnarnesi, og ég er aðallega að vinna á kvöldin og nóttunni, þannig að það borgar kannski smá áður en maður fer í skóla.

Fór í hálendisgæslu ásamt 4 herramönnum úr sveitinni minni upp á Kjöl sem var bara rosa gaman,  og voru strákarnir ekkert smá myndarlegir bæði í eldhúsinu og líka í að þrífa til og svona. Greynilega vel upp aldir þessar elskur :)

Í lok hálendisgæslunnar fékk ég svo að vita það að ég hefði komist inn í skóla í Keflavík
þannig að nú bíð ég bara eftir íbúð á Keilissvæðinu, og er sagt að þeir ÆTLI að koma öllum sínum nemendum inn á stúdentagarða í haust. Þá er planið að flytja til KEF í ár eða svo :) Bæði mjög spennandi og stressandi líka, en maður hefur gott af þessu og löngu kominn tími á að skoða "heiminn" aðeins haha svaka langt alveg hálftími á milli Á LÖGLEGUM!!

En annars er það sem stendur hæst þessa dagana að ég er að fara á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM  með Bjögga og Sigrúnu og verður það bara æðislegt eins og það hefur alltaf verið geri ég ráð fyrir. Förum á fimmtudeginum og með HEXXXTIX DALLINUM sem ég hef ekki gert síðan 2004 í vonda veðrinu, veit eiginlega ekki hvernig ég á að möndla þetta...en það kemur í ljós kannski að maður fái sér bara aðeins í tánna og verði hress :S hver veit.

Ætla að láta þetta gott heita í bili


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 22:33:45 / lindab

Blogga...hvað er nú það?

Já það mætti halda að maður hefði misst samband við umheiminn, og að ég sé farin að halda að netið sé bara bóla. Alveg úti á túni og er bara stolt af því :) Síðan ég bloggaði síðast hefur ansi margt gerst, mörg ferðalög, próf og útskrift svo eitthvað sé nefnt. Ég og Hildur skelltum okkur til Barcelona í helgarferð, ferðin var æði og það er alveg komið á planið að fara aftur til þessarar yndislegu borgar.

Fyrir stuttu (16Maí fór ég svo til Akureyrar og tók eitt próf ( rúllaði því upp ) og útskrifaðist svo úr sjúkraflutningaskólanum seinna um daginn með tilheyrandi tjútti. Við systkinin vorum bæði að útskrifast nema Atli var að klára neyðarflutningsnámið, strákurinn var dúx úr sínu námi enda algjör nörri :)  Svo var bara farið í smá bjór á slökkvistöðina á AK og svo bara út að borða á KEA. Framhaldið stóðst svo ekki ritskoðun svo það hefur verið ákveðið að láta það gott heita sem komið er frá þessari helgi.

Helgina eftir þetta var svo skundað á Ísafjörð þar sem litla frænka ( Vala Karen ) var að útskrifast úr menntaskólanum þar í bæ. Fór þar í útskriftarveislu heima hjá henni og svo út að borða um kvöldið með öllum útskriftarnemunum og fleirum, það teiti var örlítið penna en gengur og gerist í öðrum landsfjórðungum, en .það er ágætt að einhverjir kunna sig ennþá. Ætla bara að óska Völu aftur til hamingju með þennan æðislega áfanga (allavega meira en frænka hennar hefur gert) En það stendur nú til bóta hjá þeirri gömlu þar sem hún er nú búin að taka fjarnám í vetur, og er svo á hraðri leið í sumarskóla núna á fimmtudaginn. Já það verður nóg að gera, þannig að þið kannski fyrirgefiið mér með bloggleysi þangað til svona einhverntíman í Júlí :) en þá ætti flest prófin að vera búin.

Kveð með þessari for-afsökun fyrir næsta bloggleysi, og vil hér með fá einhver komment svona svo maður heyri/sjái eitthvað frá þessum vinum og kunningjum ( ekki eins og maður sé duglegur að hittast )

KK

Linda Björk

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 20:41:16 / lindab

Apríl

Hellúúú

Ákvað að henda inn smá færslu hérna til að fá það á hreint að ég er semsagt á lífi.

Síðan ég kom heim er ég búin að gera ýmislegt, m.a fara á leiðbeinendanámskeið í fyrstu hjálp og gekk það bara rosa vel - er semsagt orðinn leiðbeinandi.

Vinna  eginlega alla daga sem ég hef ekki verið á námskeiði eða út úr bænum....
er samt bara búin að fara út úr bænum í einhverja 4 daga - fór til Ísafjarðar um páskana sem var eiginlega bara hin besta skemmtun :) Vegna þess að ég tek mér alltaf eitthvað mis gáfulegt fyrir hendur þegar ég er í fríi þá er ég ekki ennþá komin með allt perfect heima hjá mér eftir tjónið, en það er þó allt á réttri leið....þarf bara að gefa sér SMÁ tíma í að fínpússa. Allt svona stórt komið, nema kannski gardínur sem ég ætla að fá mér, held ég fari bara og kaupi þær strax á mánudaginn.

Er að hugsa um að koma mér bara upp í rúm því á morgun ætla ég að klára þessa 5 daga törn sem ég er búin að vera á - hlakka mikið til því þessi dagur t.d var KLIKKAÐUR

kem með eitthvað MISgáfulegt seinna

Luv Linda

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 20:56:23 / lindab

Komin heim og meira en nóg að gera

Jæja þá erum við Birna komnar heim frá fyrirheitna landinu og var það bara nokkuð klakklaust sem það var gert. Löbbuðum í gegnum tollinn og ég get svo svarið það að okkur var ekki einu sinni boðið góðann daginn þósvo við höfum sagt það af fyrra bragði....og ég með 2 x XL dufflebag frá north face með mér ) hahaha!!!

Síðan ég kom heim erég bara búin að vera að vinna og læra þess á milli, er búin að taka smá slurk í lærdómnum en betur má þó ef duga skal og nú er sko takmarkið að standa sig enn betur en á síðustu önn :)

Er að vinna núna og svo er það bara leiðbeinendanámskeið í fyrstu hjálp strax í fyrramálið (held það verði mjög gaman) er samt að reyna að púsla saman verkefninu sem ég á að gera fyrir það og ætli það verði ekki eiinhver undirbúningur langt fram á nótt!!!

Annars sofnaði ég í gær bókstaflega yfir bókinni sem ég var að lesa :S reyndar náði ég með herkjum að klára blaðsíðuna og laggðist svo meðvitundarlaus í svona korter þangað til ég hafði mig í það að bursta tennurnar hahahaa!!! já svona er djöfullega erfitt að læra stundim eftir langann vinnudag :)

En já ætlaði bar aða koma með smá svona info fyrir þá sem það vilja - ætla að fara að klára síðasta klukkutímann af vinnunni minni og fara svo að læra

Lovjú¨!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 22:22:42 / lindab

Jáá Sææææll

Án efa setning ferðarinnar - jááá sææææll - sjit hvað þetta er búið að flakka oft og stundum held ég að fólk sé að velt fyrir sér hvað sé að þessum Íslensku vitleysingum.

Fórum út á Fimmtudaginn og það gekk allt vel - smá seinkun á fluginu hjá Icelandair en það er svosem ekkert nýtt að það sé ekki búið að bord-a vélina þegar hún á að fara í loftið. Vorum svo komnar á góðum tíma - að við héldum til Boston og búnar að tékka okkur inn í flugið þegar við ákv. að fá okkur að éta. Það gekk svona glimrandi vel hjá sumum en ekki öðrum, og vorum við næstum búnar að missa af næsta flugi. En ég vil reyndar meina að það hafi verið geðsjúklingurinn sem elti okkur að matarstöðunum og spurði og spurði um hvað væri að gerast og allt það!! Við erum að tala um að þetta var ugly útgáfa af Pétri Jóhanni og var svona 150 á hæð. Birna tók nokkur aukaslög í Border control og fannst ekki sniðugt þegar kaninn spurði okkur spjörunum úr hvað í andsk... við værum að gera í landið þeirra.

Við komumst þó án allra frekari áfalla til Chicago þar sem Sara og nú eiginmaður hennar Greg sóttu okkur. Birna hélt aðeins áfram að vera hrædd við hegðun kanans á leiðinni á Hwy inum en það er allt að koma.

´Dagurinn í gær var svo tekinn snemma - ( samt var kvöldið áður ekki tekið eins snemma ) og farið að versla við fyrsta hanagal - vorum alveg ÓGEÐSLEGA klárar að rata í Ameríkunni og gekk þetta allt bara eins og í lygasögu.

Fórum svo út að borða með Söru í hádeginu og já sææææll hvað við vorum saddar...og við kláruðum ekki einu sinni matinn okkar. Það gerði það af verkum að við borðuðum ekkert í veislunni ( drukkum nú samt nokkra svellkalda )

Undirbúningur fyrir brúðkaup í Ameríku er svoldið spes þar sem vinkonurnar og "mamman" eru alveg að tapa sér og virðist hreinlega vera sem allir LIFI fyrir brúðkaup!!! Brúðkaupið var svo mjög flott og Sara alveg rosalega flott!! Var haldið í svona "þjóðgarði" aðeins út fyrir bæinn og í svona skála - var samt búið að skreyta ALLT og voðalega flott. Athöfnin var mjög falleg, en aðeins í styttri kantinum miðaðvið heima. Þá var bara ástæða til að fá sér meiri bjór. :)

Svo þuftum við að leggja af stað í ferðina LÖNGU. löggðum af stað kl 12 í einhvern bæ þar sem við tókum rútu, á flugvöllinn í Chicago. vorum komnar 2 tímum of snemma í einhverjum skítabæ og sváfum smá þar eins og verstu rónar. Svo tók við rútan og var bara reynt að sofa þar líka. Tékkuðum okkur inn og allt það og vorum svo að vona að við gætum fengið okkur eitthvað að borða, en það var ekkert opið nema Mc. Donalds og Dunkin doughnuts.....og við ÖSNUÐUMST til að fara á það síðarnefnda. SÆÆÆÆÆLLLL hvað það var ógeðslegt, hvernig er hægt að gera muffins svona vondar.

Vorum svo sofnaðar áður en vélin var farin í loftið frá O'hare sem var bara mjög gott þar sem við vorum orðnar ÓGEÐSLEGA þreyttar um nóttina.

Lentum í Boston í morgun um kl 10 og vorum komnar á hótelið um klst síðar. Síðan var bara gengið frá farangrinum inn á herbergi og skellt sér beint í Mallið.

Versluðum allt of mikið eins og í gær, og tókum svo leigara heim með viðkomu í áfengisversluninni!! Síðan var bara farið í það að fylla fríhafnarpokann af klökum og hella í vaskinn til að kæla bjórinn og hvítvínið,

Nú er bara að taka því aðeins róelega og skella í sig meira en einum öl. ;)
Fara í sturtu og máta eitthvað af þessum fötum sem keypt voru í dag :)

Svo ætlum við skutlurnar að kíkja út á lífið í kvöld :D

Hlakka til að heyra frá ykkur smússís!!!

Lovjú!!  Linda ( og Birna vonandi líka ) hún er að horfa á ANTM!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 00:00:21 / lindab

ALLT að gerast !!!

Já það er hreinlega allt að gerast hérna í Hvamminum....haldiði að það hafi ekki verið klárað að parketleggja í dag ( já og glöggir kannski átta sig á því að það eru liðnir næstum því 2 mánuðir) Semsagt allt að smella en það er þó ýmislegt sem á eftir að fínpússa þar sem þetta gekk frekar treglega að setja gólfefnin. Má semsagt ekki vera að neinu meira þar sem ég er að fara til BOSTON á morgun og þaðan förum við svo til CHICAGO og svo þaðan ennþá lengra til INDIANA!!!

Já þetta verður stuð! það eru 17 tímar í BROTTFÖR frá KEFLAVÍK og ég held það sé komin 1 flík ofaní tösku. ÉG er ekki búin að ákveða í hverju ég ætla að ferðast. Ég finn EKKI hleðslu unitið fyrir myndavélina mína. OG þvottavélin bilaði í dag, þannig að ég þurfti að fara til bróður míns og CO að þvo! JÁ elskurnar það er ekki annað hægt að segja að það er æðislegt þegar allt gengur svona á afturfótunum.

Dagurinn í dag var svoldið busy þar sem ég byrjaði á að fara í sjúkraþjálfun ( er farin að halda að ég sé masokisti að halda þessu áfram ) Fór svo í vax og litun á augabrúnum, og fór svo og lét laga á mér hárið. Já það getur verið mikið að gera í beuty tretmentum stöku sinnum.

Er búin að vera að vinna síðustu 5 eða 6 daga og oftast á 12 tíma vöktum ( fékk sms 6 sinnum í dag um að það vantaði á næturvakt vegna veikinda ) En ég held ég sé alveg vel afsökuð með ALLT þetta að gera :S Já ég byrjaði líka á því að passa lítinn engil í morgun sem gerði sér lítið fyrir og vaknaði rétt rúmlega 5 :) Þannig að ég er orðin svoldið þreytt og er þessvegna bara að spá í að skella mér upp í RÚMIÐ mitt!!! vaááá það er langt síðan ég hef farið í RÚMIÐ MITT!!!

Elska þetta - Lífið er yndislegt :)

Haldið endilega áfram að koma með svona MIS skemmtileg komment elskurnar :)

Lof end pís!!!

Linda

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 21:56:19 / lindab

Boston baby!!

Hæhó!!

Og gleðilegan valentínusardag allir saman ;)

Eins og margir vita þá er ég að fara til útlanda. Ég og Birna erum semsagt að fara til Boston eftir 2 vikur (28.feb) fljúgum svo þaðan til Chicago O'hare flugvallar og förum svo þaðan til næsta fylkis sem heitir Indiana. Föstudagurinn fer svo í brúðkaup áður en haldið verður til baka til Boston sömu leið, og vonandi ekki mikið villst á leiðinni ;)

Svo er bara planið að gera allt vitlaust í Boston þessa helgi, láta nýja gullkortið aðeins finna fyrir því og svona. Erum búnar að panta okkur hótel þarna og mér lýst bara ágætlega á það alveg hreint og hlakka mikið til að komast til USA í búðir og svona.

Vona bara að það verði hægt að versla nóg og hafa það alveg svakalega gott :) Trúi ekki öðru en við stöllur eigum eftir að skemmta okkur vel þarna eins og annarsstaðar þar sem við komum.

En að öðru, þá er ég skráð í skóla fyrir þá sem ekki vita....og gerðist stelpan bara gróf á því í þetta skiptið og skráði sig í 3 fög!! og þar á meðal efnafræði....ég sem hélt ég væri svo góð í efnafræði að ég gæti tekið próf úr fyrstu 2 köflunum ólesið, en það reyndist vera svolítið OFmat á sjálfri mér þar sem ég fékk ekki nema 6,5. En það er víst bara til að læra að því!!!

Ég fer vonandi að hætta að sofa í stofunni hjá m og p í næstu viku þar sem ég býst við að fá parket í byrjun vikunnar. Þá er reyndar ýmislegt eftir. Er samt búin að mála og er rosa ánægð með það ( á eftir að taka 2 eða 3 hurðir)
Þarf samt að kaupa mér einhvern annann skáp þar sem ég er með fötin mín í ferðatösku og pokum núna ( og ég þarf að losa það áður en ég fer út)

Kannski að maður skelli inn fyrir og eftir myndum þegar þetta er allt komið, en eins og ég sagði þá er margt eftir.


Vona að ég sjái sem flesta kommenta hérna, alltaf gaman að sjá þá sem nenna að lesa babblið í mér

Linda Björk

» 10 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 18:30:29 / lindab

Update

Já fínt....já sæll

 

Hér kemur smá update vegna fjölda áskoranna....þó sérstaklega frá einni manneskju (nefnum engin nöfn ) En af mér er svosem ekkert mikið að frétta. Heima hjá mér er allt svona í sama gírnum eiginlega, búin að mála smá, en á mikið eftir. Á líka eftir öll gólfefni og líka að finna þau. Málaði einn vegg alveg kaffi brúnan og svo er ég búin að vera eins og þeitipíka út um allann bæ að eyða peningum, sjittt hvað það er auðvelt að tapa sér og það er ekki gott þegar maður hefur eiginlega ekki pláss fyrir það sem maður er að kaupa einu sinni.

Keypti mér reyndar ógeðslega flottann skáp í Ego Dekor, en bað um að fá að sækja hann bara eftir svona 2 vikur....hehehhe bara að ég verði búin að gera þetta íbúðarhæft þá.

 Veit ekki hvort ég nenni að koma með einhverja "skýrslu" um árið 2007, en ég er að vinna núna, og að horfa á landsleikinn....eins gott að þeir taki þetta í þetta þetta skiptið ;) Trúi ekki öðru upp á strákana okkar:)

 

Hef þetta ekki mikið lengra í bili, nema ef einhvern langar að koma á skíði eða eitthvað þessháttar í vikunni þá er ég til og er í fríi....gæti kannski verið sniðugt að fara jafnvel eitthvað á skíði, svona þar sem það virðist ekki vera hægt að hafa opið í bláfjöllum vegna skorts á starfsfólki

 

over and out

 

Linda B


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 00:20:57 / lindab

jacuzzi??

Hello alle sammen.

Í dag vaknaði ég upp við ekkert alveg það skemmtilegasta í heiminum....það var ALLT á floti heima hjá mér, nema það var ekki beint jacuzzi stemmarinn á þessu því þetta var ískalt :( ég semsagt vaknaði rétt fyrir 7 því ég átti að mæta í vinnu, FRÁBÆRT ég auðvitað greyp símann og hringdi auðvitað beint í vinnuna og bað um að fá slökkviliðið til að hjálpar mér að losa þetta....því þetta var alveg það mikið. Í leiðinni sagði ég þeim náttúrulega að ég kæmi allavega ekki strax í vinnuna, en myndi bara sjá til með framhaldið....sem varð svona skrautlegra og skrautlegra með hverjum tímanum sem leið.

Slökkviliðið kom þarna með 3 alveg galvaska stráka sem rumpuðu því af að losa mig við vatnið á gólfinu, og létu tryggingarnar vita og allt hvað eina....stóðu sig eins og hetjur með ryksugurnar ;) Svo kláruðu þeir bara sitt starf og sögðu okkur reyndar að þetta væri náttúrulega ekkert hætt að koma þannig að það gæti nú verið að ég ætti eftir að þurfa að fá þá aftur.

 Síðan líður auvitað tíminn og það fer auðvitað allt að versna og komið miklu hærra vatnsborð en áður.....farið að fara upp í sófann og allt, munaði ekki miklu að þetta færi í rúmið mitt og þá var ég farin að örvænta hvað ég ætti að gera....hvort ég myndi bara standa á götunni og eiga ekki einu sinni rúm.

Svo í hámarki vonleysisins þegar ég vara að fara út, komin með alveg meira en nóg af því að horfa á dótið mitt skemmast eitt af öðru.....hvað helduru að ég hafi séð fyir utan bílskúrinn hjá mér, HSSK mætt á svæðið ég sagði þeim að það væri nú sennilega ekki mikið sem þau gætu gert, en þau þrjóskuðust við þessar elskur og enduðu með að vera komin með dælur þarna ofaní. En rétt um það þegar þau voru búin að koma einhverju smá dóti fyir þá gerist annað óvænt....en þá voru komnir 1 slökkviliðsbíll og sjúkrabíll fyrir utan hjá mér....semsagt 5 manns og þá gátu félagarnir í sveitinni nú bara farið að pakka saman þar sem shs var með svoldið öflugri græjur. Þegar að þeir menn voru búnir að vinna í þónokkurn tíma var allt orðið alveg voðalega flott....og við vorum að vona að það hefði gengið það sem þeir settu til að loka fyrir uppstreymið.....en NEI það var ekki svo gott þannig að  það var allt orðið jafn fullt á 20 mín.

Svo fékk ég góða hjálp frá frænku minni, manninum hennar og pabba hennar og fóru þau í að redda hinu og þessu og meðal annars ryksugu sem var hægt að sjúga vatnið með og halda þannig í lágmarki vatnshæðinni....reynt út um allan bæ að fá dælur en það var ekki alveg það einfaldasta á þessum degi , þar sem ég efast ekkert um að það hafi verið fleiri í vandræðum en ég  -  en ég var samt í MESTU vandræðunum að MÍNU mati....ég held reyndar í alvöru að ég hafi verið kannski í meiri vandræðum en allavega sumir.

Svo fundum við loksins dælur hjá árna kópssyni sem að hélt í við vatnið sem kom upp úr niðurföllunum. en það var ekki meira en svo samt. Síðan kom annar bíll sem var frá hreinsitækni og gat hann loksins losað einhverja stíflu sem var einhversstaðar lengst í einhverjum brunni sem fannst ekki...og var þessvegna bara hægt að gera BRÁÐABYRGÐA lausn á þessu....en allavega vatnið hætti að flæða upp þannig það var hægt að fara að þurrka....vííiíi

Svo fór ég bara í það að bíða eftir matsmanninum frá tryggingarfélaginu,,,,,og stendur sú bið ennþá yfir, og hefur gert það frá því klukkan 8 í morgun þegar óskað var eftir henni....en já það voru 200 hringingar í dag, en ég trúi því varla að mín...sem kom kl 8 um morgununn hafi verið hringin nr 200...kannski það hafi verið byrjað að telja aftan af listanum. ( sjitt var næstum búin að skrifa taka aftanfrá ) hahaha En þeir sendu samt mann til mín með allskonar græjur núna í kvöld...blásara og rakaskylara og eitthvað bull...það eru allavega mikil læti þarna.

En allavega það er alveg rosalega leiðinlegt tilfinning að horfa upp á allt dótið sitt skemmast og geta eiginlega ekki gert neitt í því :( held þetta sé svona svipað og að horfa á allt brenna bara....og geta ekkert gert.

 

En allavega þá vil ég þakka öllum sem hjálpuðu mér í dag því það var alveg ómetanlegt að fá allt þetta yndislega fólk til að aðstoða sig þegar maður er í svona "djúpum" vil semsagt þakka fjölskyldunni allri sem var svona æðisleg að hjálpa....slökkviliðinu, HJÁLPARSVEITINNI MINNI (HSSK) sjóvá fyrir dótið sem þeir komu með, en svo að lokum vil ég skammarverðlaunin fari til lögreglunnar, sem mér finnst vægast sagt vera pappakassar. Sorry ef það skyldi einhver lögga vera að lesa þetta en bara þetta var illa lélegt!!!!!

 En jæja ég er að spá í að fara að koma mér í lúll þar sem ég er vægast sagt þreytt eftir að hafa staðið í þessu alveg fram til 8

Góða nótt elskurnar....sjáumst hress á morgun í flugeldasölu hjá HJÁLPARSVEITNNI SEM KEMUR OG BJARGAR ÞÉR ÞEGAR EITTHVAÐ ER AÐ!!! Bannað að gleyma því, og svo auðvitað verður svaka party annað kvöld vona ég :O)

Linda sundkappi


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 01:20:47 / lindab

Gleðileg jól allir saman...

Kæru vinir og aðrir....Langaði bara að óska ykkur gelðilegra jóla og alls þess sem því fylgir oftast ;) Vona að þið hafið það sem best um jólin. Þið sem fenguð ekki jólakort frá mér þá er það eina sem ég get sagt bara SORRY, það var bara mikið að gera :)

 Annað sem ég vil koma á hreint er að þeir sem eiga pakka hjá mér meiga vinsamlegast sækja þá á morgun :) Ég er nebblega að vinna í nótt og væri afskaplega gott að geta bara sett ritarann í málið :) Allavega þá held ég að flestir pakkar séu tilbúnir heima :) Bara 1 EKKI hringja í mig snemma á morgun :)

En jæja ég hef þetta ekki mikið lengra í bili, og segi bara góða nótt. Kannski að í næstu færslu verði smá upprifjun frá árinu eða eitthvað í þá áttina.

 Jólaknús, Linda


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 23:14:36 / lindab

Ohhh happy day!!!

Hæ...ætla ekki að hafa þetta langt, en langaði bara að segja ykkur að ég kom heim úr vinnunni í morgun og ákvað að tékka á einkunnunum á netinu, og viti menn haldiði að það hafi ekki verið komin inn einkunnin fyrir íslenskuna, og stelpan NÁÐI!!! Var alveg viss um það fyrir prófið að ég hefði ekkert þangað að gera. En svo eftir prófið var ég aðeins bjartsýnni, og fannst þetta vera bara 50/50 möguleikar. En ég allavega náði og er ekkert smá ánægð með það þar sem þessi önn hefur verið svoldið busy, því það er rugl að vera í 2 skólum í einu...mjög erfitt að ákv hvort maður ætlar að læra fyrir þennann eða hinn

Svo þegar ég vaknaði eftir hádegið í dag, þá var auðvitað nákvæmlega sama....ég fór og kíkti á netið og var þá komin inn einkunn fyrir stjórnmálafræðina og gekk hún bara mjög vel, og bara alls ekki hægt að kvarta undan þeirri einkunn, enda held ég að ég hafi verið með aðeins yfir 9 í kennaraeinkunn.

En allavega þetta er búið og orðið gott. Ég er búin með sjúkraflutningaskólann, 2 áfanga, og komin í nýja vinnu sem ég hef verið í nokkrum prófum og stanslausu námskeiði fráþví ég byrjaði :)

Get með sanni kallað mig Skólastelpu ;) múhahah!!!

Góða nótt allir (ég ætla allavega að fara að sofa, var að vinna í nótt og mæti kl 7:30 í fyrramálið;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 2 janúar